Fjárfestingarverkefni
Eski tekur þátt í fjárfestingarverkefnum sem samstarfsaðili, ekki sem hefðbundinn sjóður. Við komum að verkefnum með eigendum og meðfjárfestum og leggjum fram allt sem Eski býr yfir: reynslu af því að reka félög og snúa þeim við, net samstarfsaðila og Associate Partners sem eiga erindi í hvert tiltekið verkefni, og vilja til að bera ábyrgð á framkvæmdinni eftir kaup.
Hlutverk okkar fer eftir verkefninu. Í sumum tilvikum erum við meðfjárfestir sem leiðir reksturinn, í öðrum rekstraraðili fyrir hönd eigenda eða ráðgjafi í kaupferlinu og fyrstu 100 dögunum á eftir. Í öllum tilvikum koma þeir samstarfsaðilar og Associate Partners að borðinu sem reynsla þeirra á við hverju sinni.
Áherslur
Við horfum til lítilla og meðalstórra fyrirtækja þar sem við sjáum tækifæri til að bæta rekstur og skapa verðmæti.
Nálgun
Hvert verkefni er metið á eigin forsendum. Við fjárfestum í einstökum verkefnum fremur en úr föstum sjóði.
Virk þátttaka
Við tökum virkan þátt í rekstri og fylgjum verkefnum eftir frá kaupum til árangurs.
Meðfjárfestar
Við vinnum með meðfjárfestum sem deila sýn okkar á verkefnið og langtímaverðmæti.
Markaður
Ísland er heimamarkaður okkar og við horfum einnig til tækifæra á Norðurlöndum.
Ábyrgð
Við leggjum áherslu á ábyrgar fjárfestingar sem skila verðmætum til eigenda, starfsfólks og samfélags.

