Ráðgjöf
Sum félög hafa fólkið og tímann til að keyra verkið sjálf en vilja reynslu og óháð sjónarhorn við hliðina. Þá veitum við ráðgjöf: sömu aðferðir og sama reynsla og í rekstrarverkefnum okkar, en framkvæmdin er ykkar.
Ráðgjöfin er byggð á því sem við höfum sjálf gert í rekstri, ekki á kenningum. Við skilum því sem þið getið notað strax og erum til staðar þegar á reynir. Ef í ljós kemur að verkið þarf meira en ráð getum við alltaf tekið stærra hlutverk.
Kannastu við þetta?
-
Stefnan þarf endurskoðun og þið viljið leiða vinnuna sjálf, með reynslu utan frá.
-
Stjórnendateymið stendur frammi fyrir stórri ákvörðun og vill óháð sjónarhorn áður en hún er tekin.
-
Það þarf að ráða lykilstjórnanda og mistök eru dýr.
-
Menningin virðist vinna gegn breytingum sem eru í gangi.
-
Breyting er framundan og þið viljið skipuleggja hana rétt frá byrjun.
Veldu það sem á við hér að neðan - eða bókaðu samtal. Ef þið viljið frekar að við keyrum verkið, sjáið Rekstur og innleiðingar.
Við leiðum stefnumótunarvinnuna með eigendum og stjórnendum og skilum skýrri stefnu, mælanlegum markmiðum og áætlun sem félagið getur keyrt sjálft.
Reyndur stjórnandi sem trúnaðarráðgjafi forstjóra og stjórnendateymis þegar stórar ákvarðanir eru teknar - óháður og inni í málunum.
Við hjálpum stjórnendum að skipuleggja breytinguna rétt: hvað breytist, hverjir verða fyrir áhrifum, hvernig er talað um hana og hvernig er fylgt eftir.
Við greinum hvað raunverulega stýrir hegðun í félaginu og mótum með stjórnendum þær breytingar sem þarf til að menningin styðji stefnuna.
Við skilgreinum hlutverkið út frá stefnu og áskorunum félagsins, leitum og metum með eigendum og styðjum nýjan stjórnanda fyrstu mánuðina.
Óháð mat á stjórnendateymi og lykilhlutverkum áður en lagt er í breytingar, kaup eða vöxt, með skýrum tillögum um hvað þarf að breytast.
