top of page

Rekstur og innleiðingar

Eski kemur inn þegar verkið þarf að klárast: þegar stefnan er til en kemst ekki í framkvæmd, þegar reksturinn stendur ekki undir sér, þegar félög eru keypt eða sameinuð eða þegar lykilhlutverk stendur autt. Við seljum ekki greiningu. Við tökum að okkur hlutverkið eða verkefnið, berum ábyrgð á framkvæmdinni með stjórnendum félagsins og fylgjum því eftir þar til árangurinn sést í rekstrinum.

Stundum erum við inni í húsi í tímabundnu stjórnunarhlutverki, stundum við hlið stjórnenda sem keyra verkið með okkur. Stjórnendur halda völdunum og ábyrgðinni á félaginu, en við tryggjum að verkið klárist. Eftir verkefninu koma þeir samstarfsaðilar og Associate Partners Eski að borðinu sem eiga erindi í það.

​

Kannastu við þetta?

  • Félagið hefur staðið í stað í tvö til þrjú ár og enginn getur sagt með vissu hvers vegna.

  • Stefnan er til á pappír en stjórnendurnir túlka hana hver með sínum hætti.

  • Reksturinn stendur ekki undir sér og eigendur eða banki vilja sjá raunhæfa áætlun strax.

  • Það er nýbúið að kaupa eða sameina og samlegðin lætur á sér standa.

  • Lykilstjórnandi er farinn, að fara eða ræður ekki við hlutverkið.

  • Fyrirtækið hefur vaxið hraðar en skipulagið og það kostar tíma, peninga og orku á hverjum degi.

  • Þú veist hvað þarf að gera en hefur hvorki tíma né fólk til að keyra það í gegn.

​

Þekkir þú eina eða fleiri af þessum stöðum? Veldu það sem á við hér að neðan - eða bókaðu samtal og við finnum saman hvar á að byrja.

Reyndur rekstraraðili tekur við framkvæmdastjórn tímabundið - þegar stjórnandi hættir, eftir kaup eða í viðsnúningi - og rekur félagið þar til rétta lausnin er komin.

Við tökum stefnuna úr skjalinu og keyrum hana í framkvæmd: fá skýr markmið, mælikvarðar, vikulegur taktur og eftirfylgni þar til hún sést í rekstrinum.

Við komum inn þegar reksturinn stendur ekki undir sér, gerum raunhæfa áætlun með stjórnendum og keyrum hana í gegn - kostnað, skipulag og fjármögnun - þar til félagið stendur aftur.

Reyndur mannauðsstjóri inni í húsi í vöxt, endurskipulagningu eða umbreytingar: ráðningar, ferlar og stjórnendastuðningur byggð upp og rekin þar til félagið ræður sjálft við verkefnið.

Við einföldum ferla, verkaskiptingu og skipulag í félögum sem ganga vel en gætu gengið betur - og innleiðum breytingarnar með fólkinu svo sóunin komi ekki aftur.

Við tökum fyrstu 100 dagana eftir kaup eða sameiningu: eitt skipurit, einn kostnaðargrunnur, skýr hlutverk og samskipti sem halda fólki og viðskiptavinum um borð.

bottom of page