top of page

Um Eski

Eski er félag með eldmóð fyrir virðissköpun og framúrskarandi skipulagsheildum. Við tökum að okkur rekstur og framkvæmd lykilaðgerða, veitum ráðgjöf og tökum þátt í fjárfestingarverkefnum, og vinnum með eigendum, stjórnum og stjórnendum sem vilja skerpa stefnuna, snúa rekstri við eða byggja félag upp til vaxtar.
​
Við trúum því að árangur ráðist af mannlega þættinum: skýrri stefnu, sterkri forystu og menningu þar sem fólk veit til hvers er ætlast og hvers vegna. Þess vegna horfum við á stefnu, rekstur og fólk sem eina heild.
​
Við komum að verkefnum á þann hátt sem hentar hverju sinni: í tímabundnu stjórnunarhlutverki, við hlið stjórnenda sem bera ábyrgð á framkvæmdinni með okkur, sem ráðgjafar þegar félagið vill keyra verkið sjálft, eða með setu í stjórn. Markmiðið er alltaf það sama: árangur sem sést í rekstrinum og endist.
​
Nafnið vísar til eskis (Equisetum hyemale), sígrænnar og harðgerrar elftingar sem vex hratt og dafnar þar sem aðstæður eru erfiðar.
​
Tinni Kári Jóhannesson er eigandi Eski (Framkvæmdastjóri & Partner). Rekstrarmaður sem snýr við rekstri og byggir undir vöxt. Fer inn í félagið, tryggir lykilfólk, byggir innviðina sem bera viðsnúninginn og setur upp stjórnkerfi sem skila gagnsæi og árangri - þannig að stefna, menning og frammistaða gangi í takt.

​

Tinni var framkvæmdastjóri mannauðs hjá Wise í rúm fjögur ár og hluti af framkvæmdastjórn sem sneri félaginu úr tapi í rekstrarhagnað 2022-2026. Hann vann náið með forstjóra að skipulagi, stefnu og framkvæmd lykilverkefna og bar ábyrgð á mannauði, menningu og ráðningum í framkvæmdastjórn og lykilstöður. Á þeim tíma stækkaði félagið úr 70 í 180 starfsmenn og síðan niður í 120 án þess að tekjur drægjust saman. Hann leiddi jafnframt innleiðingu 4DX þvert á félagið.

 

Þar áður var hann Partner hjá Góðum samskiptum og ráðgjafi hjá Capacent, þar sem hann vann að stefnumótun, breytingastjórnun og stjórnendaleit. Hann starfaði einnig við stjórnendaleit hjá Waterstone Human Capital í Toronto og stofnaði og rak Úthópíu ehf í fjölda ára.

svarthvitmynd.jpg
bottom of page