top of page
Search

Viðsnúningur fyrirtækja: sex atriði sem ráða úrslitum

Writer: Tinni Johannesson
Tinni Johannesson
Nov 3
2 min read

Þegar rekstur er kominn í vanda og þarf á viðsnúningi að halda er áætlunin yfirleitt skrifuð í tölum. Það er eðlilegt, því tölurnar sýna hvar vandinn liggur. En það er fólkið sem framkvæmir breytingarnar og þar ráðast úrslitin. Hér eru sex atriði sem ég tel að megi ekki bregðast.


1. Segðu hlutina eins og þeir eru


Starfsfólk finnur að eitthvað er að löngu áður en það er tilkynnt. Stjórnendur sem fegra stöðuna tapa traustinu sem þeir þurfa mest á að halda. Lýstu stöðunni hreint út: hvað er að, hvað það þýðir og hvað á að gera í því. Fólk þolir erfiðar fréttir betur en óvissu.


2. Tryggðu lykilfólkið


Besta fólkið hefur flesta kosti og fer fyrst ef það sér ekki framtíð í fyrirtækinu. Finndu strax út hverja reksturinn má ekki missa. Talaðu við þá beint, segðu þeim hvert stefnt er og gefðu þeim hlutverk í viðsnúningnum. Ef lykilfólkið fer verður verkið margfalt erfiðara.


3. Láttu alla róa í sömu átt


Viðsnúningur þolir ekki að eitt teymi togi í aðra átt en hin. Settu fá og skýr markmið og gakktu úr skugga um að hvert teymi viti hvað það á að leggja af mörkum. Þegar markmið rekast á þarf að leysa úr því strax. Samtakamáttur fólksins sem framkvæmir breytingarnar skiptir meira máli en nokkur einstök ákvörðun.


4. Byrjaðu strax og sýndu árangur snemma


Fyrstu vikurnar gefa tóninn. Veldu fáein verkefni sem skila sýnilegum árangri fljótt og kláraðu þau. Það sýnir starfsfólki, eigendum og lánveitendum að áætlunin er meira en orð á blaði og skapar svigrúm fyrir stærri breytingar.


5. Gerðu breytingar sem endast


Einskiptisaðgerðir laga næsta uppgjör en vandinn kemur aftur. Spurðu við hverja ákvörðun hvort hún geri fyrirtækið sterkara eftir þrjú ár og einblíndu ekki á skammtímaárangur, þótt slíkt kunni vitaskuld að vera nauðvörn í einhverjum tilfellum. Varanlegur viðsnúningur felst í því að breyta því hvernig fyrirtækið vinnur, ekki aðeins hvað það kostar.


6. Hafðu hugrekki til að taka ákvörðun í tíma


Besta mögulega ákvörðunin byggir alltaf á þeim tíma sem þú hefur til að greina, meta og teikna upp sviðsmyndir. Í viðsnúningi er sá tími naumur. Það þarf hugrekki til að taka bestu ákvörðun sem þú getur á þeim tíma sem þú hefur, áður en tækifærið er farið eða virðið sem þú ætlaðir að verja er runnið þér úr greipum.


Að lokum


Ekkert af þessu er flókið. Það erfiða er að gera þetta allt samtímis og undir álagi. Ef þú stendur frammi fyrir slíku verkefni er ég alltaf til í samtal. Hér má lesa meira um hvernig Eski nálgast viðsnúning og endurskipulagningu.

 
 
 

Comments


bottom of page