Umbreyting félaga og eininga
Þegar félag eða eining þarf að vinna á nýjan hátt dugar ekki nýtt skipurit eða ný stefna á blaði. Umbreyting tekst aðeins þegar skipulag, fólk, menning og ferlar breytast saman. Hvort sem drifkrafturinn er vöxtur, sameining, breyttar þarfir viðskiptavina eða ný tækni eins og gervigreind, þá stendur og fellur árangurinn með því hvernig fólkið vinnur. Eski greinir hvernig félagið eða einingin starfar í dag, hannar nýtt skipulag og vinnulag með stjórnendum og leiðir umbreytinguna í framkvæmd þar til hún sést í rekstrinum.
Kannastu við þetta?
-
Skipulagið var hannað fyrir annan tíma og ábyrgð fellur á milli eininga.
-
Ný stefna hefur verið mótuð en dagleg vinnubrögð eru þau sömu og áður.
-
Ferlar eru þungir og handvirkir og standa og falla með fáum lykilmanneskjum.
-
Einingar vinna hver í sínu horni og samvinna milli þeirra kostar tíma og orku.
-
Breytingar hafa verið reyndar áður en fjöruðu út þegar á reyndi.
Þekkir þú þessar áskoranir? Eski leiðir umbreytinguna með þér, frá greiningu að nýju vinnulagi, og tryggir að skipulag, fólk, menning og ferlar vinni saman.
ALGENGAR SPURNINGAR
Spurt og svarað um umbreytingu
Hvað er umbreyting fyrirtækja?
Umbreyting fyrirtækja er þegar félag eða eining breytir í grunninn hvernig hún starfar, með nýju skipulagi, hlutverkum, menningu, ferlum og vinnubrögðum, til að ná betri árangri eða mæta nýjum aðstæðum.
Af hverju mistekst umbreyting oft?
Oftast vegna þess að breytingin stoppar á blaði. Skipuritinu eða stefnunni er breytt en fólkið, menningin og ferlarnir haldast óbreytt. Árangur næst þegar allt breytist í takt og einhver ber skýra ábyrgð á framkvæmdinni.
Hver er munurinn á umbreytingu og viðsnúningi?
Viðsnúningur snýr að félögum í rekstrarvanda þar sem þarf að stöðva tap hratt. Umbreyting snýr að því að breyta því hvernig félag eða eining vinnur, oft í rekstri sem gengur ágætlega en á meira inni.
