
Velkomin til Eski

Eski kemur inn hjá eigendum, stjórnum og stjórnendum sem þurfa að taka stórar ákvarðanir og koma þeim í framkvæmd. Við keyrum stefnu, vöxt, breytingar og viðsnúning til árangurs með fólkinu sem á að reka félagið á eftir - sem rekstraraðilar og samstarfsfólk, ekki sem greinendur. Árangurinn mælist í rekstrinum, ekki í glærum.
Tvær leiðir til að vinna með Eski
Rekstur og innleiðingar
Við tökum ábyrgð á hlutverkinu eða verkefninu og keyrum það til árangurs með stjórnendum félagsins, inni í húsi eða við hlið þeirra.
-
Framkvæmdastjóri til leigu
-
Mannauðsstjóri til leigu
-
Innleiðing stefnu
-
Viðsnúningur og endurskipulagning
-
Samþætting eftir samruna
-
Straumlínulögun
Skoða rekstur og innleiðingar →
Ráðgjöf
Þið framkvæmið, við ráðleggjum. Sömu aðferðir og sama reynsla, fyrir félög sem vilja keyra verkið sjálf.
-
Stefnumótun
-
Stjórnendaráðgjöf
-
Stjórnendamat
-
Stjórnendaráðningar
-
Vinnustaðamenning
-
Breytingastjórnun
Eski er leitt af Tinna Kára Jóhannessyni, sem var hluti af stjórnendateyminu sem sneri Wise úr tapi í rekstrarhagnað 2022-2026, ásamt neti reyndra sérfræðinga sem spanna vítt svið.
Fyrsta skrefið
Fyrsta skrefið er alltaf að hittast og skilja þarfir félagsins. Engin tvö félög eru eins og við gefum okkur ekkert fyrirfram. Ertu ekki viss hvort þú þarft rekstur og innleiðingu eða ráðgjöf? Það er einmitt það sem við finnum út saman. Bókaðu fund, við ræðum stöðuna og þú færð skýra tillögu um næstu skref áður en þú ákveður nokkuð.
Af hverju Eski?
Eski er sígræn og harðger elfting sem vex hratt og dafnar þar sem aðstæður eru erfiðar - í grýttum jarðvegi, vindi og kulda þar sem fátt annað nær fótfestu. Stöngullinn er holur en stífur og stendur af sér veður sem leggur stærri plöntur. Áður fyrr var eski notað til að slípa og fægja, því það er nógu hart til að ná burt því sem á ekki að vera þar og nógu fínt til að skemma ekki það sem undir er. Það er það sem við viljum vera fyrir félögin sem við vinnum með.
210 Garðabær, Iceland
