top of page

Ráðningar

Rétta fólkið í réttu hlutverkin. Eski sér um leit og val á stjórnendum og lykilstarfsfólki - frá greiningu á þörf fyrirtækisins fyrir stjórnunarhæfni út frá stefnu og áskorunum hverju sinni, í gegnum markvissa leit, mat og viðtöl, að ráðningu og innleiðingu í starf. Við þekkjum íslenskan markað og nálgumst fólk sem ekki er í virkri atvinnuleit.

​

Kannastu við þetta?

  • Lykilstjórnandi sagði upp og það er enginn tími til að leita rétt - freistingin er að ráða þann sem er næstur.

  • Síðasta ráðning var hröð og kostaði fyrirtækið ár í töpuðum tíma og trausti.

  • Þú veist hvaða árangri hlutverkið á að skila en ert ekki viss hvaða hæfni þarf til þess.

  • Bestu umsækjendurnir eru í vinnu annars staðar og svara ekki auglýsingum.

  • Stjórnandi nær ekki tilsettum árangri og spurningin er hvort eigi að skipta honum út eða styðja við það sem vantar.

 

Þekkir þú þessar áskoranir? Eski tekur að sér leitina frá upphafi til enda og stendur með þér þar til nýr stjórnandi er kominn á fullt.

bottom of page