Stjórnendaráðgjöf
Faglegur og óháður stuðningur við stjórnendur og stjórnateymi til að efla ákvarðanatöku í flóknu rekstrarumhverfi. Eski er bakland forstjóra, framkvæmdastjóra og stjórnar - sem ráðgjafi á bak við tjöldin, þátttakandi í stjórnendateymi um tíma eða sem áhrif inn í stjórn - þegar taka þarf stórar ákvarðanir, skerpa á hlutverkum og samstarfi í stjórnendateyminu eða styrkja einstaka stjórnendur í hlutverki sínu.
Kannastu við þetta?
-
Þú ert efst í skipuritinu og hefur engan til að ræða erfiðustu ákvarðanirnar við af hreinskilni.
-
Stjórnendateymið fundar mikið en ákvarðanir eru teknar annars staðar - eða alls ekki.
-
Nýr stjórnandi hefur allt til brunns að bera en vantar reynslu og speglun í fyrstu 100 dögunum.
-
Stjórnandi nær ekki tilsettum árangri og frammistaða einingarinnar er í uppnámi - hvort á að skipta honum út eða styðja við það sem vantar upp á?
-
Samband stjórnar og framkvæmdastjóra er óljóst og væntingar í sitt hvora áttina.
Þekkir þú þessar áskoranir? Eski mótar með þér form stuðningsins - fastir fundir, tímabundið hlutverk eða afmarkað verkefni - þannig að hann skili raunverulegum áhrifum á reksturinn.
