top of page

Stefnumótun

Stefnumótun snýst um að þýða framtíðarsýn yfir í mælanlegar aðgerðir og brúa bilið milli stefnu og framkvæmdar. Eski vinnur með eigendum, stjórn og stjórnendum að skýrri stefnu sem svarar því hvar fyrirtækið ætlar að keppa, hvernig það vinnur og hvað þarf að gerast á næstu 12-36 mánuðum - og fylgir henni eftir með skýrum markmiðum, ábyrgð og mælikvörðum þannig að stefnan lifi í daglegu starfi en ekki bara í glærum.

​

Kannastu við þetta?

  • Stefnan var samþykkt í stjórn fyrir ári en ef þú spyrð fimm millistjórnendur hver hún er færðu fimm svör.

  • Varan er góð en tekjurnar hafa staðið í stað í þrjú ár og enginn getur sagt nákvæmlega hvers vegna.

  • Stefnumótunardagurinn skilaði góðri stemningu en engri forgangsröðun - allt er jafn mikilvægt.

  • Markmiðin eru til en enginn mælir þau og enginn ber ábyrgð á þeim.

  • Það er óljóst hvað á að hætta að gera til að rýma fyrir því nýja.

 

Þekkir þú þessar áskoranir? Eski leiðir stefnumótunina með þér frá greiningu til aðgerðaáætlunar og styður við innleiðinguna þar til árangurinn sést í rekstrinum.

bottom of page