top of page

Stjórnendamat

Flestar stórar ákvarðanir í fyrirtækjum - ný stefna, endurskipulagning, kaup, kynslóðaskipti - standa og falla með því hvort stjórnendateymið ráði við þær. Samt er sjaldan spurt skipulega hvort svo sé. Stjórnendamat Eski er afmarkað verkefni þar sem hver stjórnandi og hvert lykilhlutverk er metið út frá því sem félagið þarf á næstu tveimur til þremur árum, ekki því sem það þurfti í fyrra. Niðurstaðan er skýr mynd af styrkleikum, eyðum og áhættu í teyminu, ásamt tillögum um hvar þarf að styðja, hvar þarf að færa til og hvar þarf að ráða.

​

Kannastu við þetta?

  • Þú ert að fara í stefnubreytingu eða vöxt og veist ekki hvort teymið ræður við næsta kafla.

  • Fjárfestir eða stjórn spyr um stjórnendateymið og þú hefur ekki annað en tilfinningu að byggja svarið á.

  • Einn stjórnandi dregur teymið niður en enginn hefur tekið samtalið - og það hefur staðið lengi.

  • Lykilstjórnandi er að nálgast starfslok og það er óljóst hver tekur við.

  • Þú ert að kaupa fyrirtæki og þarft að vita hvort stjórnendurnir sem fylgja séu hluti af verðmætunum eða áhættunni.

 

Þekkir þú þessar áskoranir? Eski framkvæmir óháð og trúnaðarbundið stjórnendamat á þremur til fjórum vikum og skilar þér skýrri mynd og aðgerðaáætlun - svo næsta stóra ákvörðun byggi á staðreyndum um fólkið sem á að framkvæma hana.

bottom of page