top of page

Straumlínulögun

Flest fyrirtæki vaxa hraðar en skipulagið þeirra. Ferlar sem voru skynsamlegir þegar starfsmenn voru 15 eru orðnir flöskuháls þegar þeir eru 60, verk eru unnin tvisvar af því að enginn veit hver ber ábyrgð og stjórnendur eyða tímanum í að leysa úr flækjum sem ættu ekki að vera til. Straumlínulögun snýst um að greina hvar tími, peningar og orka tapast í daglegum rekstri og einfalda það skipulega - með fólkinu sem vinnur verkin, ekki ofan frá. Markmiðið er ekki að fækka fólki heldur að losa um getu sem þegar er til staðar.

​

Kannastu við þetta?

  • Fyrirtækið hefur vaxið en framlegðin ekki fylgt með - kostnaður eykst í takt við tekjur eða hraðar.

  • Sama upplýsingin er slegin inn í þrjú kerfi og enginn treystir neinu þeirra fullkomlega.

  • Einföld ákvörðun þarf að fara í gegnum fjóra aðila og enginn þeirra veit hvers vegna.

  • Lykilstarfsfólk er fast í handavinnu og eftirfylgni í stað þess að sinna því sem skapar verðmæti.

  • Viðskiptavinir kvarta yfir hægum svörum þó allir séu á fullu.

 

Þekkir þú þessar áskoranir? Eski kortleggur ferlana eins og þeir eru í raun, finnur hvar sóunin liggur og innleiðir einfaldara verklag með þínu fólki - mælt í tíma, kostnaði og afhendingarhraða.

bottom of page