top of page

Innleiðing stefnu

Flest félög eiga stefnu. Færri ná að láta hana breyta því sem gerist á mánudagsmorgni. Daglegur rekstur gleypir tímann, markmiðin eru of mörg eða of óljós og eftir hálft ár hefur fátt hreyfst. Eski tekur stefnuna úr skjalinu og keyrir hana í framkvæmd með stjórnendum: fá markmið sem skipta mestu, mælikvarðar sem segja hvort þau nást, skýr ábyrgð á hverjum lið og agaður vikulegur taktur. Við keyrum taktinn þar til hann heldur án okkar og árangurinn sést í rekstrinum.

​

Kannastu við þetta?

  • Stefnan var kynnt með pompi og prakt en er nú að mestu gleymd.

  • Markmiðin eru svo mörg að enginn veit hvað skiptir mestu.

  • Hver stjórnandi túlkar stefnuna á sinn hátt og deildirnar draga í ólíkar áttir.

  • Daglegur rekstur tekur allan tímann og stefnumálin bíða alltaf til næstu viku.

  • Ársfjórðungsuppgjörið sýnir að lítið hefur breyst frá síðasta uppgjöri.

​

Er stefnan til en kemst ekki í framkvæmd? Bókaðu samtal og við förum yfir hvar hún strandar og hvað þarf til að koma henni af stað.

bottom of page