top of page

Samþætting eftir samruna

Kaupsamningurinn er aðeins byrjunin. Verðmætin sem réttlættu kaupin - samlegð, stærðarhagkvæmni, sterkari markaðsstaða - verða annaðhvort til á fyrstu mánuðunum eða alls ekki. Samt er samþættingin oftast skilin eftir hjá stjórnendum sem eru þegar með fullt starf og hafa aldrei sameinað fyrirtæki áður. Eski leiðir samþættinguna sem afmarkað verkefni með skýrri 100 daga áætlun: hverjar eru ákvarðanirnar sem þarf að taka strax, hverjar mega bíða, hver ber ábyrgð á hverju og hvernig er talað við starfsfólk, viðskiptavini og birgja svo óvissan skemmi ekki það sem keypt var.

​

Kannastu við þetta?

  • Kaupin eru frágengin en félögin eru enn rekin sem tvö - tvö skipurit, tvö kerfi, tvær menningar.

  • Samlegðin sem var í fjárfestingaáætluninni hefur ekki skilað sér og enginn á hana.

  • Besta fólkið úr keypta félaginu er farið að líta í kringum sig af því að enginn hefur sagt því hvað framtíðin ber í skauti sér.

  • Stjórnendur beggja félaga vita ekki hver ræður - og viðskiptavinir finna það.

  • Það er búið að sameina á pappír en verklag, verðlagning og þjónusta eru enn ólík eftir því hvaðan fólkið kemur.

 

Þekkir þú þessar áskoranir? Eski tekur að sér stjórn samþættingarinnar frá degi eitt - forgangsraðar ákvörðunum, heldur fólki upplýstu og sér til þess að samlegðin verði að raunverulegum tölum í rekstrinum.

bottom of page