Framkvæmdastjóri til leigu
Þegar framkvæmdastjóri hættir, nýir eigendur taka við eða reksturinn þarf viðsnúning má félagið ekki standa stjórnlaust á meðan leitað er að réttu lausninni. Eski leggur til reyndan rekstraraðila sem tekur við framkvæmdastjórn tímabundið, með fullri ábyrgð á daglegum rekstri og þeim verkefnum sem stjórnin setur í forgang. Hlutverkið er skýrt afmarkað frá byrjun: hvað á að nást, hve lengi og hvernig er skilað af sér - hvort sem það er til nýs framkvæmdastjóra eða stjórnanda innan úr félaginu.
Kannastu við þetta?
-
Framkvæmdastjórinn er farinn og ráðningarferlið mun taka mánuði.
-
Nýir eigendur hafa keypt félagið og þurfa traustan rekstraraðila fyrstu mánuðina.
-
Reksturinn þarf viðsnúning sem núverandi stjórnendur hafa hvorki rými né reynslu til að leiða.
-
Eigandinn rekur félagið sjálfur og kemst aldrei í að vinna að því, bara í því.
-
Stjórnin vill brú sem heldur rekstrinum gangandi og undirbýr jarðveginn fyrir næsta framkvæmdastjóra.
Stendur félagið án framkvæmdastjóra eða þarf það tímabundið annars konar forystu? Bókaðu samtal og við förum yfir hvað hlutverkið þarf að skila og hver á að taka það.
