top of page

Vinnustaðamenning

Kerfisbundin greining og mótun á þeim gildum, viðhorfum og hegðunarmynstrum sem stýra daglegu starfi innan skipulagsheilda. Menningin ræður því hvort stefna, nýtt verklag og nýir stjórnendur ná fótfestu - eða renna út í sandinn. Eski greinir raunverulega menningu fyrirtækisins, ekki bara þá sem stendur á veggnum, og vinnur með stjórnendum að markvissum breytingum á hegðun, leikreglum og forystu þannig að menningin styðji við markmið félagsins.

​

Kannastu við þetta?

  • Menningin styður ekki við stefnuna né markmið félagsins og hægir á öllum breytingum.

  • Nýtt verklag nær ekki fótfestu og nýtt starfsfólk dettur inn í sömu hegðunarmynstur og verið er að vinna gegn.

  • Gildin eru á veggnum en enginn getur nefnt dæmi um hvernig þau birtast í ákvörðunum.

  • Tvö fyrirtæki voru sameinuð og á pappírnum gekk það upp, en í reynd eru þau enn tvö.

  • Starfsmannavelta og veikindi segja sögu sem starfsánægjukönnunin nær ekki að fanga.

 

Þekkir þú þessar áskoranir? Eski vinnur með þér að menningu sem er ekki verkefni til hliðar heldur hluti af því hvernig fyrirtækið er rekið.

bottom of page