top of page

Mannauðsstjóri til leigu

Mannauðsmálin í föstum skorðum - án þess að ráða í fullt starf. Eski tekur að sér hlutverk mannauðsstjóra tímabundið eða í hlutastarfi, í gegnum vöxt, endurskipulagningu eða umbreytingar. Við byggjum upp ráðningar, ferla og stjórnendastuðning frá grunni, sinnum kjara- og starfsmannamálum frá degi til dags og skilum af okkur kerfi sem fyrirtækið getur rekið áfram sjálft.

​

Kannastu við þetta?

  • Fyrirtækið er orðið 30-80 manns og mannauðsmálin lenda á fjármálastjóranum eða forstjóranum sjálfum.

  • Mannauðsstjórinn er í leyfi eða hættur og brúa þarf bilið án þess að missa dampinn.

  • Framundan er sameining, uppsagnir eða endurskipulagning sem þarf að framkvæma faglega og af virðingu.

  • Stjórnendur fá engan stuðning í erfiðum starfsmannamálum og hver leysir hlutina með sínu lagi.

  • Það vantar grunninn: ráðningarferli, starfslýsingar, frammistöðusamtöl og skýrar leikreglur.

 

Þekkir þú þessar áskoranir? Eski kemur inn með reynslu af mannauðsstjórn og rekstri og mótar með þér umfang, tíma og markmið sem henta þínu félagi. 

bottom of page